Myljandi gangur er nú í öllu sem viðkemur körfuknattleik í Skagafirði enda hafa Tindastólsmenn leikið hvern stórleikinn á fætur öðrum og náð góðum árangri síðan Bárður Eyþórsson tók við stjórnartaumunum í Síkinu. Feykir.is hefur að undanförnu verið að setja góð myndbönd á netið af sínum mönnum og fleiri körfutengdum verkefnum.is
Tindastóll er nú komið í undanúrslit Poweradebikarkeppninnar eftir sigur á Njarðvíkingum í 8-liða úrslitum. Eins hefur Tindastóll TV fylgt sínum mönnum vel eftir og sýnt í beinni á netinu frá leikjum liðsins á heima- og útivelli.
www.feykir.is



