Feðgarnir Baldur Ingi Jónasson, 46 ára og Ingimar Aron Baldursson, 19 ára, náðu þeim merkilega áfanga að spila saman leik í 1. deild karla síðastliðna helgi þegar að lið þeirra Vestri lagði ÍA á Akranesi með 96 stigum gegn 84. Samkvæmt frétt félagsins mun þetta hafa verið í fyrsta skipti sem feðgar leika saman með liðinu, en þó hafa einhverjir feðgar verið á mála hjá öðrum liðum áður.
Þannig voru Kári Maríuson og Axel Kárason báðir með Tindastól rétt eftir aldamótin og þá var Alexander Ermolinskij í sitthvoru liðinu með báðum sonum sínum um svipað leyti, með Andrey hjá ÍA rétt fyrir aldamót, en Pavel hjá Skallagrím nokkrum árum seinna.
Mynd / Vestri.is




