Leikir þrjú í einvígum átta liða úrslita Dominos deildar karla lýkur í kvöld. Tvö lið geta tryggt sér sæti í undanúrslitum deildarinnar og því ansi mikilvægir leikir framundan.
Á Sauðárkróki geta bikarmeistararnir komist áfram með sigri á Grindavík. Síðasti leikur liðanna á króknum var hnífjafn og réðst ekki fyrr en í framlengingu. Aftur á móti var leikur tvö í Grindavík ójafn er Tindastóll nánast valtaði yfir heimamenn.
Í Hafnarfirði koma bæði lið enn í léttu sjokki eftir sigurkörfu Kára Jónssonar frá síðasta leik. Keflavík getur farið í ansi snemmbúið sumarfrí í kvöld tapi liðið fyrir deildarmeisturunum. Keflavík aftur á móti getur orðið fyrsta liðið í sjö ár sem vinnur leik sem áttunda lið í úrslitakeppninni með sigri.
Ljóst er að í báðum einvígum kvöldsins verður ekkert gefið eftir og barist til síðasta blóðdropa. Fari svo að bæði Grindavík og Keflavík falli úr yrði það í fyrsta sinn í sögu úrslitakeppninnar sem ekkert suðurnesja lið er í undanúrslotum. En Njarðvík féll úr leik í gærkvöldi gegn KR.
Einnig er leikið í undanúrslitaeinvígjum 1. deildar karla og kvenna þar sem spennan er að ná hámarki.
Hvort liðið er líklegra til að fara í sumarfrí í kvöld? #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) March 23, 2018
Fjallað verður um leiki kvöldsins á Karfan.is auk þess sem viðtöl við leikmenn og þjálfara eftir leik fylgja með. Fylgist með!
Leikir dagsins:
Dominos deild karla:
Haukar-Keflavík kl 19:15 (Í beinni á Stöð 2 Sport)
Staðan í einvíginu: 2-0.
Tindastóll-Grindavík kl 19:15 (Í beinni á Tindastóll TV)
Staðan í einvíginu: 2-0
1. deild kvenna:
Þór Ak-Fjölnir kl 19:30 (í beinni á Thorsport.is)
Staðan í einvíginu: 1-2
1. deild karla
Hamar-Snæfell kl 19:15 (Í beinni á Hamar Tíví)
Staðan í einvíginu 2-0




