HomeNeðri deildir1. deild karlaFannst við henda þessu frá okkur

Fannst við henda þessu frá okkur

Borgnesingar máttu þola svekkjandi 82–84 tap gegn KV á Meistaravöllum í kvöld eftir mikinn dramatík á lokasprettinum.

Skallagrímur stjórnaði ferðinni stærstan hluta leiks og náði mest 21 stigs forystu snemma leiks, en heimamenn í KV unnu sig markvisst inn í leikinn í síðari hálfleik og hrifsuðu sigurinn á allra síðustu andartökunum.

Töpuð stig svíða eflaust fyrir gestina úr Borgarfirði sem virtust vera með góð tök á leiknum framan af en misstu frumkvæðið á lokakaflanum. Viðtal við Pálma Þór Sævarsson, þjálfara Skallagríms, eftir leik má sjá hér fyrir neðan.

Fréttir
- Auglýsing -