22:11
{mosimage}
Fannar Ólafsson fyrirliði KR-inga verður að taka sér rúmlega mánaðarhvíld frá æfingum og keppni vegna meiðsla. Fannar meiddist í Poweradebikarnum í haust og hefur hlíft sér síðan þá og nú hefur hnéið og hásininn sagt stopp.
Iceland Expressdeildarlið KR hefur misst fyrirliðann út vegna meiðsla á hné og hásin. Fannar Ólafsson verður í endurhæfingu og stefnir grimmt að því að vera búinn að ná sér að fullu fyrir úrslitakeppnina, annað er plús. Fannar Ólafsson er mikill keppnismaður og meiddist hann í úrslitaleik Poweradebikarsins gegn Snæfell þegar hann og Justin Shouse lentu í samstuði. Fannar hefur hlíft hnénu síðan þá og hefur hásininn á hinum fætinum bólgnað upp sökum aukins álags.
Mynd: www.vf.is