spot_img
HomeFréttirFaðir körfuboltans fallinn frá

Faðir körfuboltans fallinn frá

Körfuboltagoðsögnin Ein­ar Ólafs­son er látinn 96 ára að aldri. Hann lést 12. mars á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Eir.

Einar, sem var oft kallaður faðir körfuboltans hjá ÍR, var einn af fremstu körfuboltaþjálfurum Íslands þegar íþróttin var að stíga sín fyrstu sport hér á landi á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar og vann fjöldan allan af Íslandsmeistaratitlum með kvenna- og karlaliðum ÍR. Hjá ÍR þjálfaði Einar í nærri hálfa öld, bæði meistara- og yngri flokka, en einnig þjálfaði hann ýmis landslið Íslands á ferlinum.

Ein­ar var út­nefnd­ur heiðurs­fé­lagi ÍR, fékk heiður­skross KKÍ og einnig gull­merki KKÍ fyr­ir störf sín í þágu körfu­bolt­ans á Íslandi.

Mynd:KKI.is

Fréttir
- Auglýsing -