Haukaleikmaðurinn Heather Ezell var útnefnd besti leikmaður kvennastjörnuleiksins en hún var í sigurliði Iceland Express sem skellti Shell-liðinu 103-85.
Ezell var með myndarlega þrennu í leiknum, 29 stig, 13 fráköst og 10 stoðsendingar. Í Shell-liðinu var Njarðvíkingurinn Shantrell Moss fyrirferðamest með 22 stig og 11 fráköst.




