Eva Margrét Kristjánsdóttir og Keilor Thunder máttu þola tap fyrir Diamond Valley í suðurhluta NBL1 deildarinnar í Ástralíu, 58-76.
Á tæpum 30 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Eva Margrét 9 stigum, 6 fráköstum og 3 stoðsendingum.
Keilor eru eftir leikinn í 16. sæti af 19 liðum með 4 sigra og 12 töp það sem af er tímabili.