HomeFréttirEuroleague: Fimm lið komin í átta liða úrslit

Euroleague: Fimm lið komin í átta liða úrslit

 
Sex leikir fóru fram í gærkvöldi í Meistaradeild Evrópu (Euroleague) og að loknum gærdeginum er ljóst að fimm lið eru komin áfram í átta liða úrslit. Barcelona er eitt þessara fimm liða en Börsungar fóru í framlengdan spennuleik gegn Maccabi Electra í gær. 
Maccabi Electra 85-92 Barcelona
Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 73-73 svo grípa varð til framlengingar þar sem Börsungar sigldu yfir gestgjafa sína. Terence Morris var stigahæstur hjá Barcelona með 19 stig, 6 fráköst og 2 stoðsendingar en hjá Maccabi var Jeremy Pargo með 19 stig, 5 fráköst og 2 stoðsendingar.
 
Þau lið sem komin eru áfram í átta liða úrslit:
 
Barcelona
Maccabi Electra
Olympiacos
Real Madrid
Montepaschi Siena
 
Úrslit gærkvöldsins:
 
Zalgiris 74-80 Valencia
Fenerbache 65-80 Olympiacos
Caja Laboral 78-63 Unicaja
Montepaschi 88-76 Efes Pilsen
Partizan 56-61 Real Madrid
 
Mynd/ Terence Morris gerði 19 stig í liði Barcelona í gær.
 
Fréttir
- Auglýsing -