KR samdi í dag við tólf uppalda leikmenn sína fyrir komandi átök í Bónus deildum karla og kvenna.
Um var að ræða tveggja ára samninga karlamegin, en þeir sem félagið samdi við voru Lars Erik Bragason, Hallgrímur Árni Þrastarson, Orri Hilmarsson, Veigar Áki Hlynsson, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson og þá samdi Þorvaldur Orri Árnason til eins árs.
Kvennamegin var um að ræða tveggja ára samninga, en leikmennirnir sem um ræðir eru Rebekka Rut Steingrímsdóttir, Perla Jóhannsdóttir, Lea Gunnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Anna Margrét Hermannsdóttir og Arndís Rut Matthíasardóttir.
Karfan var viðstödd blaðamannafund KR þar sem tilkynnt var um samningana og ræddi þar við Egil Ástráðsson formann félagsins um hvaða þýðingu það hafi að semja við uppalda leikmenn og hvað félagið þurfi að gera til að ná árangri á komandi leiktíð.