spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaErfiður dagur Tryggva og Zaragoza gegn toppliði Real Madrid

Erfiður dagur Tryggva og Zaragoza gegn toppliði Real Madrid

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í dag fyrir toppliði Real Madrid í ACB deildinni á Spáni, 94-69.

Zaragoza eru eftir leikinn í 13. sæti deildarinnar með sex sigra og níu töp það sem af er tímabili.

Á 16 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi 6 stigum og 6 fráköstum.

Næsti leikur Tryggva og Zaragoza í deildinni er þann 26. janúar gegn Murcia.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -