HomeFréttirEr Stjarnan á leið í sumarfrí?

Er Stjarnan á leið í sumarfrí?

 

Einn leikur er í 8 liða úrslitum Dominos deildar karla í kvöld. ÍR heimsækir Stjörnuna í Ásgarð. Fyrir leikinn leiðir ÍR 2-1 í einvíginu og því geta þeir með sigri komist áfram í undanúrslitin.

 

Mikið hefur gengið á í þessari seríu fyrir utan sjálfan körfuboltann. Brotist var inn í klefa Stjörnunnar í fyrsta leik og þá var erlendur leikmaður ÍR, Ryan Taylor, dæmdur í þriggja leikja bann eftir þann síðasta, en áhugavert verður að sjá hvernig hinir leikmenn liðsins mæta stemmdir til leiks án hans í dag.

 

 

 

 

 

Leikur dagsins

 

8 liða úrslit Dominos deild karla:

 

Stjarnan ÍR – kl. 19:15 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport

(ÍR leiðir einvígið 2-1)

Fréttir
- Auglýsing -