spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaEr Bjarki Ármann að taka við Þór Akureyri?

Er Bjarki Ármann að taka við Þór Akureyri?

Karfan hefur heimildir fyrir því að Þór Akureyri sé að semja við Bjarka Ármann Oddssson um að taka við liðinu eftir að Andy Johnston var látinn fara á dögunum. Í yfirlýsingu frá Þór sagði að Andy væri látinn fara vegna fjárhagsörðugleika félagsins. Gera heimildir Körfunnar ráð fyri því að Bjarki verði kynntur á næstu dögum, það gæti þó breyst.

Bjarki er uppalinn Þórsari sem lék með liðinu upp alla yngri flokka og í meistaraflokki, þá lék Bjarki einnig með KR veturinn 2006 – 2007. Síðastliðin ár hefur hann haldið til á Austurlandi þar sem hann hefur gert flotta hluti með yngri flokka á Reyðarfirði.

Fréttir
- Auglýsing -