Emil Karel Einarsson var á héraðsþingi HSK á dögunum valinn Körfuknattleiksmaður HSK fyrir árið 2010. Emil er ungur og efnilegur íþróttamaður sem hefur átt sigursælan feril þó að hann sé ungur að árum.
Árið 2010 lék Emil með 10., 11. og drengjaflokki í sameiginlegu liði Hamars og Þórs sem lék í undanúrslitaleikjum Íslandsmóts KKÍ og einnig með meistaraflokksliði Þórs í 1. deild. Emil var Norðurlandameistari með U16 ára landsliði Íslands sem keppti á Norðurlandamóti í Svíþjóð í maí og var fyrirliði liðsins.
Frétt af http://thorkarfa.com/wordpress/





