spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2021Emelía Ósk er að koma aftur inn í landsliðið eftir erfið meiðsli...

Emelía Ósk er að koma aftur inn í landsliðið eftir erfið meiðsli “Er á frekar góðu róli”

Íslenska kvennalandsliðið er mætt til Ljubljana í Slóveníu þar sem landsliðsglugginn fer fram. Liðið mætir Grikkjum þann 4. febrúar og heimakonum í Slóveníu þann 6. febrúar.

Þetta eru síðustu leikir liðsins í A-riðli undankeppni Eurobasket sem fram fer síðar á þessu ári. Ísland hefur leikið fjóra leiki í riðlinum og er án sigurs með sigahlufallið -107 stig. Liðið er því pressulaust fyrir lokaleikina.

Landsliðshópinn í heild má finna hér

Karfan mun fjalla um leikina sem framundan eru að bestu getu. Okkar maður í Ljubljana spjallaði við Emelíu Ósk Gunnarsdóttur, ræddi við hana hvernig staðan væri á henni og hvernig henni litist á aðstæður í Slóveníu.

Emelía er að koma aftur inn í liðið eftir að hafa verið að jafna sig á erfiðum meiðslum síðustu misserin. Verið frábær í taplausu liði Keflavíkur það sem af er vetri í Dominos deildinni, skilað 13 stigum og 4 fráköstum að meðaltali í fyrstu fimm leikjunum.

Fréttir
- Auglýsing -