Bakvörðurinn Embla Kristínardóttir hefur samið við Keflavík um að leika með félaginu á þessari leiktíð. Embla var áður á mála hjá 1. deildar liði Grindavíkur, en rifti samning sínum þar fyrir stuttu. Það sem af var tímabili hjá Grindavík hafði hún þó farið vel f stað. Skilað 21 stigi, 12 fráköstum og 5 stoðsendingum að meðaltali í leik og leitt alla leikmenn deildar í framlagi.
Samkvæmt frétt Víkurfrétta er þjálfari Keflvíkur, Sverrir Þór Sverrisson ánægður að fá Emblu aftur heim, en hún lék lengi með félaginu áður en hún hélt til Grindavíkur. Segir hann hana frábæran leikmann með mikla reynslu og að leikstíll hennar henti liðinu vel.
Fyrr í dag varð það ljóst að Emelía Ósk Gunnarsdóttir tæki ekki frekari þátt með liðinu í vetur sökum krossbandsslits. Því um góðar fréttir fyrir liðið og stuðningsmenn þess að ræða.




