spot_img
HomeFréttirEM kvenna: Átta liða úrslitin hefjast í kvöld

EM kvenna: Átta liða úrslitin hefjast í kvöld

Það er nú orðið ljóst hvaða lið það eru sem munu spila um átta efstu sætin á EM kvenna en riðlakeppninni lauk í gærkvöld.

 
Tékkland sigraði fyrri riðilinn en ásamt þeim fóru Litháen, Rússland og Tyrkland áfram. Svartfjallaland sigraði seinni riðilinn og með þeim fóru áfram Lettland, Frakkland og Króatar.

Í kvöld hefjast leikirnir í átta liða úrslitum og munu Lettar mæta  Rússum í fyrri leiknum og Tékkar mæta Króatíu.

Á morgun mætast svo Svartfjallaland og Tyrkland í fyrri leiknum en Litháar og Frakkar í þeim seinni.

Mynd: Svartfjallaland hefur komið, séð og sigrað en þær eru að spila á EM í fyrsta sinn – fibaeurope.com

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -