Elvar Már Friðriksson og Rytas lögðu Wolves í dag í LKL deildinni í Litháen, 89-91.
Eftir leikinn eru meistarar Rytas í 5. sæti deildarinnar með fjóra sigra og þrjú töp það sem af er tímabili.
Á rúmum 22 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 7 stigum, 2 fráköstum, 8 stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Rytas í deildinni er þann 6. nóvember gegn Zalgiris.