spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaElvar Már öflugur í Meistaradeildinni

Elvar Már öflugur í Meistaradeildinni

Elvar Már Friðriksson og Rytas máttu þola sjö stiga tap fyrir Bonn í Meistaradeild Evrópu í kvöld, 79-86.

Rytas er eftir leikinn í öðru sæti J riðils 16 liða umferðar keppninnar, með einn sigur og tvö töp eftir fyrstu þrjá leikina.

Á rúmum 25 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 12 stigum, 3 fráköstum, 4 stoðsendingum og stoðsendingu.

Næsti leikur Rytas í keppninni er seinni leikurinn gegn Bonn, en hann fer fram úti í Þýskalandi þann 8. mars.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -