spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaElvar Már með 12 stig í Meistaradeildinni

Elvar Már með 12 stig í Meistaradeildinni

Elvar Már Friðriksson og Rytas máttu þola tap í kvöld fyrir Bonn í Meistaradeild Evrópu, 99-72.

Leikurinn var hluti af 16 liða úrslita riðlakeppni Meistaradeildarinnar, en eftir hann sitja Rytas í 3. sæti J riðils með einn sigur og þrjú töp það sem af er keppni.

Á tæpum 22 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 12 stigum, frákasti, 2 stoðsendingum og stolnum bolta.

Næsti leikur Rytas í keppninni er þann 15. mars gegn Bahcesehir.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -