spot_img
HomeFréttirElsti maður liðsins í besta forminu

Elsti maður liðsins í besta forminu

10:58

{mosimage}

Sigurður Ingimundarson er ekkert að missa sig yfir góðri byrjun Keflavíkurliðsins því hann veit að lítið er búið af mótinu og hans lið á enn ýmislegt inni. Keflavík hefur unnið alla fimm leiki sína til þessa.

 

Keflvíkingar hafa byrjað Iceland Express-deild karla af miklum krafti og unnið fimm fyrstu leiki sína. „Það góða við þessa byrjun er að við eigum ýmislegt inni og höfum ekki verið að spila heilu leikina neitt sérstaklega vel. Ég er rólegur yfir þessu því að ég veit að við eigum eftir að gera meira," segir Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga. Liði hans var spáð 5. sætinu fyrir mótið en hefur fyrir löngu gert lítið úr þeirri spá.

„Við gerðum ekkert í því að hækka væntingarnar til liðsins. Við vorum lítið með í æfingamótunum og létum lítið til okkar taka í þeim. Það var ekki nein sérstök tilviljun. Fyrsti leikurinn á móti Grindavík gaf síðan ákveðin fyrirheit. Þeim var spáð miklu og góðu gengi enda með mjög gott lið. Við byrjuðum mjög sannfærandi á móti þeim," segir Sigurður en síðan hefur liðið unnið Snæfell og Njarðvík á útivelli og svo örugga heimasigra gegn Þór og ÍR.

„Það sem gerir liðið gott er að menn spili innan hópsins og geri það sem er lagt upp fyrir liðið. Allir þessir nýju leikmenn eru að gera það og þess vegna erum við í toppmálum," segir Sigurður.

Allir þrír erlendu leikmenn liðsins smellpassa inn í Keflavíkurliðið. Bobby Walker (21,4 stig í leik) og Tommy Johnson (20,6 stig í leik) eru illviðráðanlegir í sókninni og Anthony Susnjara er sterkur varnarmaður og getur einnig tekið til sín í sókninni.

Sigurður segir það létti fyrir liðið að taka ekki þátt í Evrópukeppninni. „Við erum bara að einbeita okkur að einni keppni og það er gríðarlegur munur fyrir okkur," segir Sigurður, sem leggur upp með að bæta vörnina því hann þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af sókninni.

„Við getum alltaf skorað og það er ekkert vandamál fyrir okkur. Við vinnum mest í vörninni og höfum margar útfærslur á varnarleiknum og það skiptir okkur miklu máli. Það sem við höfum verið að gera þegar okkur hefur gengið vel í leikjum er að spila vörnina vel. Þegar við höfum náð því á köflum höfum við verið virkilega góðir," segir Sigurður og er sérstaklega ánægður með leikinn í Njarðvík. „Það nær ekkert annað lið en við að halda Njarðvík í 63 stigum á heimavelli, það er klárt."

Magnús Þór Gunnarsson, fyrirliði Keflavíkurliðsins, hefur leikið vel á tímabilinu. Hann gerir nú meira af því að stjórna leik liðsins og hefur sem dæmi gefið 6,2 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu fimm leikjunum.

„Besti hluti hans leiks er sendingarnar. Þó að hann hafi verið þekktur sem skytta er hann að mínu mati aðallega frábær sendingamaður. Hann er alhliða góður og mjög skynsamur leikmaður sem leiðir liðið áfram með því að taka góðar ákvarðanir. Það er styrkleikur hjá liðinu að hafa mann eins og hann í því," segir Sigurður, sem segir hugarfar leikmanna eins og Magnúsar og fleiri sem urðu meistarar þrjú ár í röð frá 2003 til 2005 hafa smitandi áhrif á liðið.  

„Jonni, Arnar, Maggi og Gunni Einars eru allt miklir keppnismenn og þeir telja sig þurfa að sanna eitt og annað. Þeir hafa lagt mikið á sig til þess að gera það. Þeir þekkja það vel að verða meistarar, vilja hafa það svoleiðis og gera allt til þess að ná því. Þeir eru allir að spila mjög vel," segir Sigurður, sem er sérstaklega ánægður með reynsluboltann Gunnar Einarsson sem spilaði sinn 300. úrvalsdeildarleik á dögunum.

„Gunnar er búinn að æfa þvílíkt mikið og elsti maður liðsins er í besta forminu af öllum mönnum í deildinni," segir Sigurður.

www.visir.is 

Mynd: www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -