Sean Burton lætur ekki mikið yfir sér. Hann er grannvaxinn og ekki hár í loftinu og það er fátt sem bendir til þess að þar fari bandarískur atvinnumaður sem er nýbúinn að setja met í þriggja stiga körfum. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag þar sem Óskar Ófeigur Jónsson ræðir við Burton og þjálfara hans Inga Þór Steinþórsson.
Hamarsmenn og Njarðvíkingar geta hins vegar vottað um það að menn mega ekki láta útlitið blekkja sig því þar er á ferðinni svakaleg skytta.
„Þeir voru að spila 2:3 svæðisvörn og voru að gefa okkur opin skot. Ég hitti úr fyrsta þriggja stiga skotinu mínu og eftir það fór allt ofan í hjá mér," segir Sean, sem endaði með 55 stig og sextán þriggja stiga körfur úr 20 skotum í leiknum á móti Hamri.




