HomeFréttirEkta Ghetto-sigur í Hellinum

Ekta Ghetto-sigur í Hellinum

 

 

Haukar mættu í Hellinn í kvöld með það fyrir augum að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. ÍR-ingar höfðu líka að miklu að keppa, geta enn orðið deildarmeistarar verði úrslit þeim hagstæð og eiga í það minnsta möguleika á að ná öðru sætinu af Stólunum. Líta mætti á leikinn sem góða prófraun á Kára-laust Haukaliðið en svo gæti farið að hann verði ekki með í fyrstu leikjum úrslitakeppninnar.

 

 

 

Spádómskúlan: Í kúlunni birtast átök jarðskorpufleka þar sem þeir nuddast hvor utan í annan eins og þrjóskir hrútar. Kúlan er í fýlu eftir að hafa klúðrað þessu síðast og neitar að sýna skýrari mynd. Með nákvæmum lestri má þó sjá að ÍR-flekinn virðist enda ofan á, 76-72.

 

Þáttaskil

Jones setti fyrstu fimm stig gestanna en Ryan og Sæsi svöruðu með þristum. Um miðjan fyrsta leikhluta leiddu heimamenn12-9 og höfðu aðeins sett þrista fram til þessa. Í bland við afleita hittni Haukamanna og frábæra vörn ÍR-inga skoruðu gestirnir aðeins 2 stig til viðbótar og heimamenn leiddu 21-11 eftir einn fjórðung. Ryan var kominn með 9 stig og allt í blóma hjá ÍR.

 

Annar leikhluti var frekar undarlegur. Bæði lið börðust af mikilli hörku og villum fjölgaði hratt. Haukar fengu þó nokkur galopin þriggja stiga skot sem vildu bara alls ekki ofaní. Ekki var ástandið mikið betra í sóknarleik heimamanna en um miðjan leikhlutann var staðan 24-11. En þá var eins og skrúfað væri frá brunaslöngunni hjá Haukum og þegar tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum höfðu gestirnir minnkað muninn í 26-25. Þá fyrst rönkuðu ÍR-ingar við sér og náðu að svara ágætlega fyrir sig af harðfylgi. 34-27 var staðan í hálfleik.

 

Það var allt í járnum allan seinni hálfleikinn og spennan jókst með hverri mínútunni. Jones sótti í sig veðrið eftir því sem á leið og kom Haukum í fyrsta sinn yfir í langan tíma 42-43 með laglegri þriggja stiga körfu. Þá voru 3 mínútur eftir af þriðja leikhluta. Haukaliðið virtust ætla að skríða mjög hægt en örugglega eins og skriðjökull yfir gestgjafa sína en Svenni Klassi og Ryan hægðu á framskriðinu með tveimur flottum þristum og ÍR leiddu 52-47 fyrir lokaátökin.

 

Lítið var skorað og spennan mikil eins og búast mátti við í lokaleikhlutanum. Haukur Óskars kom með tvo stóra þrista í röð og jafnaði leikinn í 54-54 er 6 mínútur voru eftir. Danero svaraði með körfu góðri og hélt sínum mönnum áfram í forystu. ÍR-ingum tókst á undraverðan hátt að hanga á forystunni og þegar 8 sekúndur voru eftir kom Matti sínum mönnum í 64-62 með vítaskoti. Haukar fengu séns á að jafna eða sigra með þristi og Haukur gerði tilraun til þess síðarnefnda en Ryan Taylor kom hreinlega fljúgandi og blokkaði skotið! Lokaniðurstaðan því 64-62 ÍR-sigur.

 

Tölfræðin lýgur ekki

Skotnýting beggja liða var agaleg í kvöld jafnvel þó tekið sé tillit til góðs varnarleiks og spennustigs. Paul Jones bætti aðeins tveggja stiga nýtingu sinna manna í seinni hálfleik en þriggja stiga skotnýtingin endaði í 16% á móti 28% nýtingu heimamanna.

 

Bestu leikmenn

Paul Jones var án vafa bestur allra í kvöld. Hann var með 26 stig og 7 fráköst. Við þetta má bæta að hann var sá eini sem bauð upp á ásættanlega skotnýtingu. Hjá ÍR skilaði Ryan mestu, 20 stigum og 7 fráköstum, en setti aðeins 3 þrista í 12 skotum.

 

Kjarninn

ÍR-ingar eiga ekki lengur tölfræðilegan mögulega á deildarmeistaratitlinum en annað sætið er þeirra í það minnsta þangað til á morgun. ÍR þarf að treysta á að Stólarnir tapi í Njarðvík eða heima á móti Stjörnunni í síðustu umferðinni á meðan þeir þurfa að sækja 2 stig til Keflavíkur. Hvernig sem það fer hafa ÍR-ingar átt frábært tímabil en þó er aðal keppnin öll eftir!

 

Haukar spiluðu í raun ekki illa í þessum leik og Ívar Ásgríms var ekki ósáttur við sína menn eins og kemur fram í viðtalinu við hann eftir leik. Liðið hitti bara ekki neitt, að hluta í galopnum færum. Það eru Valsmenn sem fá tækifæri á því að skemma partýið í Hafnarfirði á fimmtudaginn en ekki var á Ívari að heyra að hann hefði miklar áhyggjur af því.

 

Myndasafn

Tölfræði leiks

 

 

Umfjöllun / Kári Viðarsson

Myndir / Bára Dröfn

Fréttir
- Auglýsing -