KV landaði ótrúlegum 84–82 sigri á Skallagrími í 1. deild karla á Meistaravöllum í kvöld eftir mikinn baráttuleik.
Borgnesingar hófu leikinn af miklum krafti og náðu mest 21 stigs forskoti, en Vesturbæingar sýndu mikla seiglu í síðari hálfleik og tryggðu sér sigurinn með flautukörfu á lokasekúndunum.
Sigurinn markar draumabyrjun fyrir Fal Harðarson sem var kynntur sem nýr aðalþjálfari liðsins í gær og hefur aðeins náð tveimur æfingum með hópnum fyrir þennan leik. Rætt var við Fal strax eftir leik og má sjá viðtalið við hann hér fyrir neðan.




