HomeBónus deildinBónus deild kvennaEinstefna í Ólafssal: Haukar burstuðu Fjölni

Einstefna í Ólafssal: Haukar burstuðu Fjölni

Haukar byrjuðu tímabilið í Bónus deild kvenna með miklum látum og unnu 96–65 stórsigur á Fjölni á Ásvöllum í kvöld. Haukar gerðu út um viðureignina strax í fyrsta leikhluta með mögnuðu áhlaupi þar sem þeir skoruðu 38 stig gegn aðeins 10 stigum gestanna úr Grafarvogi og litu aldrei um öxl eftir það.  

Sóknarleikur heimakvenna gekk eins og smurð vél en Haukar settu niður 17 þriggja stiga skot, gáfu 30 stoðsendingar og refsuðu grimmt í vörninni með því að stela 19 boltum og neyða Fjölni í 26 tapaða bolta. Tinna Guðrún Alexandersdóttir fór fyrir liði Hauka og var stigahæst á vellinum með 24 stig, Sólrún Inga Gísladóttir bætti við 20 stigum, Jadakiss Nashi Guinn skilaði 10 stigum og 9 stoðsendingum og Eloise Stéphanie Pavrette drottnaði undir körfunni með 12 fráköst.  

Í liði Fjölnis bar mest á Örnu Rún Eyþórsdóttur sem skoraði 19 stig og tók 8 fráköst. Charisse Fairley bætti við 12 stigum og 8 fráköstum, á meðan Elín Heiða Hermannsdóttir átti fína alhliða frammistöðu með 10 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -