spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaEinn leikur á dagskrá í dag í fyrstu deildinni

Einn leikur á dagskrá í dag í fyrstu deildinni

Einn leikur er á dagskrá fyrstu deildar kvenna í dag.

Vestri tekur á móti KR kl. 16:00 á Jakanum á Ísafirði.

Upphaflega átti leikurinn að fara fram í gær, en þar sem það var ófært vestur var honum frestað um einn dag.

Fyrir leikinn er KR í 7. sæti deildarinnar með 12 stig á meðan að Vestri er í 11. sætinu með 4 stig.

Liðin hafa í eitt skipti áður mæst í vetur. Þann 6. nóvember vann KR lið Vestra örugglega á Meistaravöllum, 98-60.

Staðan í deildinni

Leikur dagsins

Fyrsta deild kvenna

Vestri KR – kl. 15:00

Fréttir
- Auglýsing -