HomeFréttirEinn besti leikurinn okkar í vetur – FSu á ferð og flugi

Einn besti leikurinn okkar í vetur – FSu á ferð og flugi

Kjartan Atli Kjartansson fór með lærisveina sína í FSu austur til Egilsstaða á mánudag þar sem Selfyssingar gistu aðfararnótt þriðjudags og í kvöld nældu þeir sér í tvö góð stig með 70-85 sigri á heimamönnum í Hetti. Með sigrinum komst FSu uppfyrir Þór Akureyri og í 7.-8. sæti 1. deildar ásamt ÍG. Ísafjörður á sunnudag og Egilsstaðir á þriðjudag, langt og strangt ferðalag að baki hjá FSu þar sem tvö stig komu í hús af fjórum mögulegum. Karfan.is ræddi við Kjartan í kvöld þar sem liðsmenn FSu héldu sig til í félagsheimilinu á Egilsstöðum og halda heim á leið á morgun.
,,Leikurinn í kvöld og leikurinn gegn Skallagrím fyrir jól eru okkar bestu leikir á tímabilinu. Við gistum hér á mánudagskvöld enda vildum við einbeita okkur að þessum fjögurra stiga leik og ná innbyrðisviðureigninni þar sem Höttur vann okkur aðeins með tveimur stigum í fyrri umferðinni,“ sagði Kjartan í samtali við Karfan.is.
 
,,Við erum hægt og rólega að klirfa upp töfluna enda lögðum við mikla áherslu á leikina gegn ÍG og Hetti. Leikurinn gegn KFÍ á sunnudag var góður en við bara náðum ekki að halda í við þá,“ sagði Kjartan sem eftir flug frá Ísafirði beið með liðið í tvo tíma eftir flugi frá Reykjavík til Egilsstaða og liðið er svo væntanlegt aftur heim á morgun.
 
Steven Crawford var stigahæstur í liði FSu í kvöld með 22 stig og 9 fráköst og þá átti Bjarni Bjarnason einnig góðan dag hjá FSu með 17 stig, 6 fráköst og 11 stoðsendingar. Hjá Hattarmönnum var Michael Sloan með 29 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar og spilandi þjálfarinn Viðar Örn Hafsteinsson bætti við 15 stigum og 4 fráköstum.
 
Heildarskor:
 
Höttur: Michael Sloan 29/6 fráköst/5 stoðsendingar, Viðar Örn Hafsteinsson 15/4 fráköst, Trevon Bryant 10/11 fráköst/4 varin skot, Andrés Kristleifsson 8/4 fráköst, Kristinn Harðarson 4, Eysteinn Bjarni Ævarsson 2, Bjarki Ármann Oddsson 2/4 fráköst, Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar 0, Frosti Sigurdsson 0, Nökkvi Jarl Óskarsson 0, Sigmar Hákonarson 0, Anton Helgi Loftsson 0.
 
FSu: Steven Terrell Crawford 22/9 fráköst, Orri Jónsson 17/7 fráköst, Bjarni Bjarnason 17/6 fráköst/11 stoðsendingar, Þorkell Bjarnason 11, Sæmundur Valdimarsson 8/4 fráköst, Svavar Stefánsson 5/4 fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 3/7 fráköst, Eggert Sigurþór Guðlaugsson 2, Daníel Kolbeinsson 0, Gísli Gautason 0.
 
Mynd/ Úr safni – [email protected]Kjartan og félagar hafa vafalítið fagnað fyrir austan í kvöld.
 
Fréttir
- Auglýsing -