spot_img
HomeFréttirEinkunnir Íslands gegn Grikklandi:

Einkunnir Íslands gegn Grikklandi:

 

Karfan.is ætlar eftir hvern leik íslenska karlalandsliðsins að vera með einkunnagjöf sem hefur það að markmiði að endurspegla áhrif hvers leikmanns á leikinn. Nokkrir þættir koma við sögu í mati á leikmönnunum og þar má nefna væntingar til leikmannsins, tölfræði, varnarleikur og svo auðvitað einfaldlega geðþótti undirritaðs. Einungis eru gefnar einkunnir fyrir 10 eða fleiri spilaðar mínútur.

 

 

Kvarðann má sjá hér fyrir neðan einkunnagjöfina.

 

 

Martin Hermannsson – 4

Átti erfitt uppdráttar í kvöld gegn stærð Grikkjana, bæði varnar- og sóknarlega. Vaknaði aðeins í 4ða leikhluta en ekki góður dagur.

 

 

Kristófer Acox – 7

Átti frábæran fyrri hálfleik en sást minna í þeim seinni. Flottur í vörninni og rúllaði vel í sókninni.

 

 

Hlynur Bæringsson – 6

Traustur að vanda en átti erfitt með stærri leikmenn Grikkjanna, Kláraði vítin vel í fyrri en var ekki mikið í sóknarleiknum í síðari hálfleik.

 

 

Jón Arnór Stefánsson – 5

Augljóslega ennþá meiddur og gat lítið beitt sér, hitti illa en sýndi reynsluna á köflum og sótti villur.

 

 

Hörður Axel Vilhjálmsson – 4

Flottur í vörninni að vanda en komst aldrei í takt við leikinn sóknarlega. Vont að fá fleiri tapaða bolta en stoðsendingar frá leikstjórnanda liðsins.

 

 

Logi Gunnarsson – 3

Erfitt í dag hjá Loga, hitti illa fyrir utan og klikkaði úr öllum sínum skotum. Átti einnig erfitt í vörninni.

 

 

Pavel Ermolinskij – 6

Góður í dag. Var öflugur sóknarlega í fyrri hálfleik og var duglegur að finna menn. Stoðsendinga og frákastahæstur (með Hauki Helga).

 

 

Haukur Helgi Pálsson – 8

Langbesti leikmaður liðisns í dag, tilþrif sóknarlega og henti í góða troðslu. 21 stig uppskera dagsins í bland við frábæra vörn.

 

 

Tryggvi Snær Hlinason – 5

Öflugur undir körfunni varnarlega en náði ekki að setja sitt mark á leikinn hinum megin á vellinum. Byrjaði landsliðsferilinn á góðu vörðu skoti.

 

 

Brynjar Þór Björnsson – Spilaði ekki nóg

Ægir Þór Steinarsson – Spilaði ekki nóg

Elvar Friðriksson – Spilaði ekki nóg.

 

 

 

Kvarðinn:

10 – Stórkostlegur leikur, leiddi liðið til sigurs með tilþrifum á báðum endum vallarins og frábærri tölfræði.

9 – Frábær leikur, nokkurn veginn óaðfinnanlega spilaður og frábær tölfræði.

8 – Virkilega góður leikur, góð tölfræði í bland við sjáanleg áhrif á leikinn.

7 – Góður leikur, getur verið frábær á öðrum enda vallarins eða góður í bæði vörn og sókn.

6 – Fínn leikur, leikmaðurinn skilaði sínu og gerði lítið af mistökum sem kostuðu liðið.

5 – Allt í lagi, leikmaðurinn hafði ekki sjáanleg áhrif á leikinn til góðs eða ills.

4 – Ekki góður leikur, leikmaðurinn hafði sjáanleg vond áhrif á heildarniðurstöðu leiksins.

3 – Vondur leikur, leikmaðurinn með vonda tölfræði og slakur í vörn og sókn.

2 – Hræðilegur leikur, ömurleg tölfræði í bland við sjáanleg slæm áhrif á liðið.

1 – Til skammar.

Fréttir
- Auglýsing -