HomeFréttirEinar Árni tekur við Njarðvík

Einar Árni tekur við Njarðvík

 

Njarðvík tilkynnti rétt í þessu að félagið hafi gert þriggja ára samning við Einar Árna Jóhannsson um þjálfun meistaraflokks karla. Einar er að sjálfsögðu að upplagi Njarðvíkingur, en hann þjálfaði Þór í Þorlákshöfn síðustu þrjú tímabil. 

 

Einar hefur þjálfað Njarðvík áður, en hann var þjálfari síðasta Íslandsmeistaraliðs liðsins árið 2006.

 

 

Samkvæmt umfn.is:

,,Við fögnum því innilega að fá jafn reyndan þjálfara og Einar við stýrið en það er hugur í okkur Njarðvíkingum sem fyrr. Í Einari þekkjum við sterkan þjálfara sem hefur um árabil gert góða hluti í Ljónagryfjunni,“ sagði Friðrik Pétur Ragnarsson formaður KKD UMFN við samningagerðina í dag.

 

Einar Árni kvaðst spenntur fyrir komandi verkefnum í Ljónagryfjunni. ,,Ég er gríðarlega ánægður og spenntur að vera kominn heim enda þekki ég vel til í Ljónagryfjunni. Síðustu ár hjá Þór Þorlákshöfn hafa verið mjög lærdómsrík og skemmtileg en nú tekur við nýr kafli og ég er sannfærður um að spennandi tímar eru í vændum í öflugu umhverfi í Njarðvík og get bara ekki beðið eftir því að fara af stað.“

 

Aðspurður um breytingarnar á leikmannahópi Njarðvíkur sagði Einar að sú vinna fari af stað strax næstu daga.

 

Mynd/umfn.is –  Einar Árni og Friðrik Pétur innsigla samstarfið í Ljónagryfjunni í dag

Fréttir
- Auglýsing -