Við fengum fyrrum leikmann og þjálfara ÍR, Eggert Maríuson, til þess að spá aðeins í úrslitaleiki dagsins fyrir okkur. Kvennamegin leikur Keflavík við Skallagrím kl. 13:30 og karlamegin eru það KR og Þór sem að leika kl. 16:30. Báðir leikirnir eru í beinni útsendingu á RÚV.