Körfuknattleiksdeildir Hamars og Þórs hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að binda enda á sex ára samstarf sitt í meistaraflokki kvenna. Á þessum árum tókst félögunum að byggja upp öflugt starf í kvennakörfunni á Suðurlandi sem veitti leikmönnum dýrmætan vettvang til að vaxa og keppa á meðal þeirra bestu. Reksturinn hefur samkvæmt tilkynningu hins vegar reynst umfangsmikill og ljóst var að aukið fjármagn þurfti til að halda honum gangandi á sama grundvelli, en þar sem félögin náðu ekki saman um áframhaldandi forsendur var ákveðið að hvoru færðist aftur í sitt horn.
Í kjölfar skilnaðarins hefur Þór Þorlákshöfn þegar óskað eftir því við Körfuknattleikssamband Íslands að tefla fram eigin liði í 1. deild kvenna á komandi keppnistímabili. Stjórnir beggja félaga senda leikmönnum, þjálfurum, sjálfboðaliðum og stuðningsmönnum sínar bestu þakkir fyrir samfylgdina á liðnum árum, auk þess sem Hamar og Þór þakka hvoru öðru fyrir samstarfið og óska hvoru öðru velfarnaðar í framtíðinni.




