HomeFréttirDómarinn Íslandsmeistari í Dominion

Dómarinn Íslandsmeistari í Dominion

Jón Svan Sverrisson körfuknattleiksdómari og margfaldur ríkjandi Íslandsmeistari í borðspilinu Dominion, varð hlutskarpastur á Íslandsmeistaramótinu síðastliðinn laugardag. Hann varðist öllum tilraunum keppinauta sinna til að velta honum úr sessi og varði titilinn enn eina ferðina.

Kristín Sigurðardóttir tryggði sér annað sætið á mótinu eftir harða keppni og Breki Steinn hafnaði í þriðja sætinu.

Færslu um mótið er að finna á samfélagsmiðlum Spilavina.

Fréttir
- Auglýsing -