spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaDanero Thomas í Hamar

Danero Thomas í Hamar

Fyrstu deildarlið Hamars hefur samið við framherjann Danero Thomas um að leika með liðinu á komandi tímabili.

Danero hefur síðustu ár leikið með hinum ýmsu liðum í Dominos deildinni. ÍR, KR, Þór Akureyri og á síðasta tímabili lék hann með Tindastóli. Þar skilaði hann 13 stigum, 6 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik.

Þetta mun ekki vera í fyrsta skiptið sem hann leikur í fyrstu deildinni, en þar hefur hann áður verið með Fjölni ,Val og þá lék hann með Hamri þar árið 2014.

Þá komst Danero í fyrsta skipti í íslenska A landsliðið á síðasta ári.

Danero hefur verið við æfingar hjá Hamri nú í haust og lék hann æfingeleik með liðinu gegn Skallagrím á dögunum. Þar sem að Hamar vann með 102 stigum gegn 62 og Danero skilaði 18 stigum, 6 fráköstum og 5 stoðsendingum.

Fréttir
- Auglýsing -