spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaDallas Morgan í þriggja leikja bann

Dallas Morgan í þriggja leikja bann

Aga- og úrskurðarnefnd dæmdi leikmann Sindra Dallas Morgan í dag í þriggja leikja bann fyrir atvik sem átti sér stað í leik liðsins gegn Álftanesi þann 26. apríl. Morgan mun því missa af upphafsleikjum Sindra í úrslitakeppni fyrstu deildarinnar, en þar mætir Sindri liði Selfoss í fyrstu umferð, en fyrsta viðureignin er annað kvöld.

Agamál 46/2020-2021

Hinn kærði leikmaður, Dallas Morgan, skal sæta þriggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Álftaness og Sindra í 1. deild mfl. kk. sem leikinn var 26. apríl 2021.

Úrskurð má lesa í heild sinni hér

Fréttir
- Auglýsing -