spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaDagur Kár stigahæstur gegn Taldea

Dagur Kár stigahæstur gegn Taldea

Dagur Kár Jónsson og Oursense máttu þola tap í kvöld fyrir Taldea í Leb Plata deildinni á Spáni, 63-74.

Eftir leikinn er Ourense í 2. sæti deildarinnar með sjö sigra og tvö töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 26 mínútum spiluðum skilaði Dagur Kár 19 stigum, 2 fráköstum og 4 stoðsendingum, en hann var stiga og framlagshæsti leikmaður Ourense í leiknum.

Næsti leikur Ourense er þann 18. desember gegn Ponferrada.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -