spot_img
HomeFréttirCraig Pedersen eftir endurkomusigur gegn Hollandi "Við gerðum margt gott í leiknum,...

Craig Pedersen eftir endurkomusigur gegn Hollandi “Við gerðum margt gott í leiknum, sköpuðum góð færi og skotin detta betur næst.”

Ísland lagði Holland í einkennilegum leik í undankeppni HM 2023 í Ólafssal í kvöld, 67-66. Íslenska liðið lenti mest 16 stigum undir en náðu að sækja sigurinn á lokamínútunum. Fyrir leik voru Ísland, Ítalía og Holland öll tryggð áfram úr H-riðlinum hvernig sem leikirnir færu, enda hefur Rússlandi, fjórða liðinu í riðlinum, verið meinað að taka frekari þátt í undankeppninni sökum innrásar Rússlands í Úkraínu. Sigurinn setur Ísland tímabundið í efsta sætið í riðlinum. Ísland er komið áfram með þrjá sigra í fjórum leikjum og á því enn góða möguleika á að komast á HM 2023.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við Craig Pedersen, þjálfara íslenska landsliðsins, eftir leikinn. Hann kvað sóknina hafa verið góða en það sem vantaði upp á hafi verið að skotin dyttu.

“Við gerðum margt gott í leiknum, sköpuðum góð færi og skotin detta betur næst.”
Fréttir
- Auglýsing -