Meistarar LA Lakers gáfu LeBron James og félögum í Cleveland Cavaliers góða jólagjöf í gærkvöldi í aðal-jólaleik NBA. Þá unnu Boston Celtics góðan sigur á Orlando í toppleik austursins, Miami vann Knicks, Phoenix rústaði Clippers og Portland vann Denver.
Lakers mættu varla til leiks í Staples Center og leyfðu Cleveland að ýta þeim burt frá körfunni. Stóru menn Lakers, þeir Andrew Bynum og Pau Gasol voru lítið að gera og bekkurinn skilaði litlu og þannig fóru tveir af helstu styrkleikum liðsins.
Kobe Bryant var sá eini sem átti sæmilegan jóladag þar sem hann skoraði 35 stig, en frammistaða heimamanna í viðbót við vafasama dómgæslu varð til þess að stuðningsmenn Lakers misstu stjórn á sér og hentu froðufingrum í massavís inn á völlinn auk þess sem ein vatnsflaska kom svífandi inn á völlinn án þess þó að hitta neinn.
Á meðan voru hlutirnir að ganga upp hjá erkifjendum þeirra í Boston, sem sýndu fádæma seiglu og hörku í vörninni gegn Dwight Howard og félögum. Howard komst varla í færi allan leikinn og skoraði aðeins 5 sitg, þó hann tæki að vísu 20 fráköst.
Fjarvera Paul Pierce, sem fór í minniháttar aðgerð til að laga á sér hnéð, kom ekki að sök fyrir Celtics. Rajon Rondo fór fyrir þeim með 17 stig og 13 fráköst, en Vince Carter var með 27 stig fyrir Orlando.
Úrslit næturinnar/Tölfræði:
New York 87 Miami 93
Orlando 77 Boston 86
LA Lakers 87 Cleveland 102
Phoenix 124 LA Clippers 93
Portland 107 Denver 96
Mynd/AP – Froðufingurnir fengu að fljúga í LA
Mynd/AP – Froðufingurnir fengu að fljúga í LA




