spot_img
HomeFréttirByrjunarlið stjörnuleiksins klár: Martin Hermannsson fékk 215 atkvæði

Byrjunarlið stjörnuleiksins klár: Martin Hermannsson fékk 215 atkvæði

Nú er það ljóst hvaða leikmenn hlutu flest atkvæði í kosningunni í byrjunarliðin tvö í Stjörnuleiknum sem fram fer 14. janúar í Dalhúsum í Grafarvogi. Samtals kusu 2.135 einstaklingar og var dreifing atkvæða nokkuð jöfn. KR-ingurinn ungi og öflugi, Martin Hermannsson, fékk dúndrandi kosningu eða 215 atkvæði sem skiluðu honum inn í byrjunarlið höfuðborgarsvæðisins.
Byrjunarliðin samkvæmt vali aðdáenda verða sem hér segir:
 
Höfuðborgarsvæðið:
Bakvörður: Justin Shouse • Stjarnan
Bakvörður: Martin Hermannsson • KR
Framherji: Marvin Valdimarsson • Stjarnan
Framherji: Hreggviður Magnússon • KR
Miðherji: Nathan Walkup • Fjölnir
 
Landsbyggðin:
Bakvörður: Giordan Watson • Grindavík
Bakvörður: Magnús Þór Gunnarsson • Keflavík
Framherji: Jón Ólafur Jónsson • Snæfell
Framherji: J‘Nathan Bullock • Grindavík
Miðherji: Sigurður Gunnar Þorsteinsson • Grindavík
 
Helgi Jónas Guðfinnsson mun stýra liði landsbyggðarinnar.
 
Teitur Örlygsson stýrir liði höfuðborgarsvæðisins.
 
Þjálfarar liðanna munu svo velja sjö leikmenn til viðbótar í sín lið.
 
Atkvæðafjöldi: Heildaratkvæði • Top 15 yfir flest atkvæði
 
1. Justin Shouse • 433
2. J‘Nathan Bullock • 360
3. Marvin Valdimarsson • 353
4. Jón Ólafur Jónsson • 294
5. Sigurður Gunnar Þorsteinsson • 273
6. Ólafur Ólafsson • 240
6. Magnús Þór Gunnarsson • 229
7. Giordan Watson • 221
8. Hreggviður Magnússon • 219
9. Martin Hermannsson • 215
10. Quincy Hankins Cole• 192
11. Elvar Már Friðriksson • 187
12. Páll Axel Vilbergsson • 185
13. Finnur Atli Magnússon • 182
14. Steven Gerard • 172
15. Árni Ragnarsson • 169
 
www.kki.is
 
   
Fréttir
- Auglýsing -