Hörður Axel Vilhjálmsson og nýliðar MBC hefja keppni í þýsku úrvalsdeildinni þann 3. október næstkomandi en efsta deildin í Þýskalandi er að öllu jöfnu kölluð Bundesligan (BBL). Nýliðarnir hefja leik á útivelli gegn Telekom Basket.
Eins og Karfan.is greindi frá fyrr á þessu ári þá fékk Hörður nýjan liðsfélaga sem Íslendingar ættu að kannast við en það er háloftafuglinn Kelly Beidler sem lék með ÍR á þarsíðustu leiktíð. Fyrsti heimaleikur MBC í deildinni er svo 6. október þegar liðið tekur á móti Phoenix Hagen. Við náðum eldsnöggt í skottið á Herði en undirbúningstímabilið hefur gengið einkar vel hjá MBC.
,,Æfingaleikirnir okkar hafa gengið virkilega vel, reyndar vonum framar þar sem við höfum unnið alla leiki nema einn. Þar á meðal eru Eurocup-lið frá Litháen og Slóveníu og svo Alba Berlín," sagði Hörður en síðasti æfingaleikur liðsins er í kvöld.
,,Persónulega hefur mér gengið vel sem og í raun öllu liðinu. Vonandi náum við að enda undirbúningstímabilið á jákvæðu nótunum og taka það sem extra ,,boost" inn í tímabilið."




