Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Boston Celtics gerðu góða ferð í Madison Square Garden og Chicago Bulls og Denver Nuggets lönduðu stórsigrum. Þá átti San Antonio Spurs ekki í vandræðum þegar Golden State kom í heimsókn.
New York 86-96 Boston
Kevin Garnett splæsti í tvennu í Stóra Eplinu, 24 stig og 11 fráköst en hjá Knicks var Carmelo Anthony með 22 stig og 5 fráköst. Glen Davis átti tilþrif leiksins og fylgist væntanlega of mikið með knattspyrnunni á Spáni ef marka má þessa Óskarsverðlaunaframmistöðu!
Chicago 132-92 Sacramento
Átta leikmenn Bulls gerðu 11 stig eða meira í leiknum. Þeirra atkvæðamestur var Derrick Rose með 18 stig og 8 stoðsendingar. Hjá Sacramento var Marcus Thornton með 25 stig.
Önnur úrslit næturinnar:
Cleveland 86-97 Orlando
New Jersey 98-102 Indiana
Memphis 103-85 Utah
San Antonio 111-96 Golden State
Denver 123-90 Toronto
Mynd/ Garnett lét fyrir sér finna í New York í nótt.





