spot_img
HomeFréttirBrynjar og KR með körfuboltabúðir í vetrarfríi grunnskólanna

Brynjar og KR með körfuboltabúðir í vetrarfríi grunnskólanna

Brynjar Þór Björnsson margfaldur Íslandsmeistari með KR og fyrrum leikmaður íslenska landsliðsins verður með körfuboltabúðir í vetrarfríi grunnskóla Reykjavíkurborgar ásamt KR. Skotbúðirnar fara fram mánudaginn 22. febrúar og þriðjudaginn 23. febrúar.. Búðirnar eru fyrir stelpur og stráka á aldrinum 9 – 16 ára (fædd 2005-2011) og er markmið búðanna að fara yfir grunnatriði körfuboltans.

Búðirnar eru fyrir stelpur og stráka á aldrinum 9-16 ára og er markmið búðanna að fara yfir grunnatriði körfuboltans. Æfingatímarnir eru frá 9-12 og búðirnar fara fram í KR – heimilinu. Þjálfarar ásamt Brynjari verða þau Ty Sabin, Taryn McCutcheon og Hörður Unnsteinsson.

Brynjar Þór hefur verið að bjóða upp á körfuboltabúðir í DHL-höllinni, á Sauðárkróki og um allt land síðustu ár. Hafa móttökurnar verið frábærar og er greinilegt að ungir jafnt sem aldnir eru ólmir í að komast í körfubolta.

Verðið er 8.000 kr fyrir allt námskeiðið og skráning fer fram hér.

Allar frekari upplýsingar um tímasetningu, verð og skráningu er að finna hér fyrir neðan og á facebook.

Fréttir
- Auglýsing -