Brandon Springer mun ekki leika meira með Fjölni í Iceland Express deild karla þetta tímabilið. Örvar Kristjánsson þjálfari Fjölnis sagði við Morgunblaðið í dag að Springer hafi staðið sig ágætlega en að ráðning Brandons Brown hafi verið af taktískum ástæðum. Brown sem er hjá Fjölni til reynslu verður með Grafarvogsliðinu á Ísafirði í kvöld.
Þessi nýjasti liðsmaður í Grafarvogi hefur þegar leikið æfingaleik með Fjölni og verður í hópnum í kvöld þegar liðið mætir KFÍ í Jakanum á Ísafirði í gríðarlega mikilvægum leik. Örvar sagði líka við Morgunblaðið í dag að liðið þyrfti meiri ógn inn í teiginn fyrir lokasprettinn sem væri félaginu afar mikilvægur.
Brandon Springer er enn á landinu en samkvæmt heimildum Karfan.is er líklegt að kappinn haldi til Þýskalands en þau mál ættu að skýrast í dag eða á morgun. ,,Springer spilaði ágætlega en okkur vantaði mann í teiginn og hann skildi það vel, ég hef sjaldan eða aldrei séð erlendan leikmann taka svona breytingum jafn vel og hann hefur m.a. verið að æfa með okkur undanfarið,“ sagði Örvar sem fór akandi með Steinari Davíðssyni formanni KKD Fjölnis vestur en þeir voru staddir í námunda við Hólmavík þegar Karfan.is náði tali af þeim.
Þá er Andrew Bennett einnig farinn frá Fjölni en það var breskur framherji sem staldraði stutt við í Grafarvogi og fékk reisupassann eftir leikinn gegn Njarðvík í síðustu umferð en Bennett þótti engan veginn standa undir væntingum.
Mynd/ Úr safni: Örvar Kristjánsson þjálfari Fjölnis.





