Fyrr í mánuðinum tók íslenska landsliðið þátt í lokamóti EuroBasket í Helsinki. Líkt og á síðasta lokamóti tapaði liðið öllum sínum leikjum í riðlakeppninni, en voru þó grátlega nálægt fyrsta sigrinum í síðasta leik gegn heimamönnum í Finnlandi.
Þrátt fyrir þetta gengi liðsins, sýndu leikmenn þess oft á tíðum frábæra takta í leikjum sínum. Framherji liðsins, Haukur Helgi Pálsson var þar ekki undanskilinn, eins og sést í tilþrifamyndabndinu hér fyrir neðan sem K H Video´s setti saman frá honum af mótinu. Annars skilaði Haukur flottu framlagi í heildina fyrir liðið, 12 stig, 3 fráköst, 3 stoðsendingar og stolinn bolti á 29 mínútum að meðaltali spiluðum í leik.
Mynd / FIBA




