spot_img
HomeFréttirBrooklyn Nets - Ruslahaugur NBA deildarinnar

Brooklyn Nets – Ruslahaugur NBA deildarinnar

 

Þessi upphitun er hluti af spá karfan.is fyrir NBA tímabilið sem hefst 26. október.

 

 

 

Brooklyn Nets

 

Heimavöllur – Barclays Center

Þjálfari – Kenny Atkinson

 

Helstu komur: Jeremy Lin, Anthony Bennett
Helstu brottfarir: Thaddeus Young, Jared Jack

 

Það er ekki mikið að frétta í Brooklyn, þeir sömdu við Jeremy Lin sem virðist við fyrstu sýn vera trix til þess að reyna að fá rassa í sætin og augu á skjáinn. Skiljanlegt svosem, en svo skoðar maður leikmannahópinn og Lin er sennilega næst besti leikmaður liðsins á eftir Brook Lopez. Sem er ekki gott. 

 

Styrkleikarnir eru Brook Lopez á póstinum og Jeremy Lin í fjölmiðlum. Veikleikarnir eru svo einfaldlega lélegur leikmannahópur með litlum efnivið. Chase Budinger, Randy Foye, Sean Kilpatrick og Luis Scola eru allir í hópnum til að mynda. Framtíðin er ekki spennandi í Brooklyn. En hey, völlurinn er flottur.

 

Líklegt byrjunarlið í fyrsta leik:

PG – Jeremy Lin
SG – Rondae Hollis-Jefferson
SF – Bogdan Bogdanovic
PF – Chris McCullough
C – Brook Lopez

 

Gamlinginn: Luis Scola(35) gæti tekið ansi marga snúninga undir körfunni, það er stuð.
Fylgstu með: Jeremy Lin, já Jeremy Lin.

 

Spá: 19-63 – 15. sæti

Fréttir
- Auglýsing -