HomeFréttirBreiðablik Íslandsmeistarar í 9. flokki drengja

Breiðablik Íslandsmeistarar í 9. flokki drengja

Breiðablik urðu á dögunum Íslandsmeistarar í 9. flokki drengja eftir sigur á Fjölni í úrslitaeinvíginu. Breiðablik vann fyrsta leikinn í Smáranum og tryggði sér svo titilinn í Dalhúsum með 73-77 sigri í öðrum leiknum. Þjálfarar liðsins eru Mikael Máni Hrafnsson og Ingimar Ólafsson.

Hér fyrir ofan má sjá mynd af sigurliðinu eftir að titillinn var í höfn. Rúnar Magni Rúnarsson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 18 stigum, 3,3 fráköstum og 1 stoðsendingu í leikjunum.

Við óskum Breiðabliki innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur!

Mynd / KKÍ

Fréttir
- Auglýsing -