Rétt fyrir jól tók Helgi Hrafn Ólafsson viðtal við þá Nebosja og Nemanja Knezevic sem spila saman fyrir Vestra í 1. deild karla. Þrátt fyrir sameiginlegt ættarnafn eru þeir ekki skyldir og eru ekki einu sinni frá sama landi. Þeir ræddu um íslenskan körfubolta samanborið við austur-evrópskan, erfiðustu andstæðinga sína hérlendis og kúltúr körfubolta áhangenda í Serbíu ásamt öðrum hlutum.
Gestir: Nebosja og Nemanja Knezevic
Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson
Dagskrá:
00:00 – Kynning og hvernig þeir byrjuðu í körfuboltanum úti.
08:38 – Hvernig þeir kynntust og hvaða liðum þeir spiluðu með erlendis.
12:50 – Hvernig þeir komu til Íslands.
17:22 – Hvað þeim finnst um íslenskan körfubolta, bæði í meistaraflokkum og í yngri flokkum.
24:10 – Upplifunin að fá að spila aftur með vini sínum.
28:12 – Erfiðustu andstæðingar á Íslandi og gengi Vestra í 1. deildinni.
34:52 – Bestu leikmenn Íslands/Serbíu/Svartfjallalands, bestu leikir Nebo og Nem á ferlinum og bestu þjálfarar þeirra.
42:17 – Körfuboltinn í Serbíu, áhangendur og rígurinn milli Red Star og Partizan
49:20 – Aftur á klakann; áhangendur hérlendis og breytt útlendingaregla á næsta ári.




