spot_img
HomeFréttirBradford ekki á leið til Grindavíkur

Bradford ekki á leið til Grindavíkur

 14:10

{mosimage}

 

 

Sú fiskisaga hefur gengið fjöllunum hærra að bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Nick Bradford, sem lék með Keflavík á sínum tíma, hafi verið á leið til liðs við Grindavík. Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindvíkinga, sagði í samtali við Víkurfréttir í dag að svo væri ekki.

 

,,Við leituðum eftir honum en hann reyndist einfaldlega of dýr en það hefði vissulega verið fínn kostur að fá hann til liðs við Grindavík,” sagði Friðrik. Bandaríkjamaðurinn Stveven Thomas meiddist á dögunum og varð því að fara heim og mun ekki leika meir með Grindavík á þessari leiktíð.

 

Bradford sem leikið hefur í Frakklandi síðan hann fór frá Keflavík fer s.s. ekki til liðs við Grindavík en Friðrik sagði að leit stæði enn yfir af leikmanni til að fylla skarð Thomas. Vonast er til að sá leikmaður verði kominn í raðir Grindavíkur fyrir leikinn gegn ÍR á sunnudag í undanúrslitum Lýsingarbikarsins.

 

Frétt og mynd af www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -