Hið árlega og vinsæla undir/yfir upphitunarhlaðvarp Boltinn lýgur ekki fór í loftið í gærkvöldi, þar sem farið er ítarlega yfir öll lið NBA-deildarinnar fyrir komandi tímabil.
Umsjónarmaður þáttarins, Sigurður Orri Kristjánsson Véfréttin fékk til sín góða gesti til að rýna í spilin. NBA-sérfræðingarnir Magnús Lúðvíksson og Ásmundur Hrafn Magnússon settust niður með Sigurði og fóru yfir leikmannahreyfingar sumarsins, hverjir eru komnir og hverjir eru farnir.
Eins og venjan er fyrir tímabilið gefa veðbankar út væntan fjölda sigra fyrir öll lið deildarinnar. Strákarnir tóku línurnar fyrir og giskuðu á hvorum megin við þær liðin myndu lenda: yfir eða undir.
Ásamt því að spá í gengi allra liðanna var tekist á við stóru spurningarnar sem brenna á körfuboltaáhugafólki:
Er Victor Wembanyama orðinn besti leikmaður heims?
Mun LaMelo lyfta Minnesota enn hærra?
Eru Knicks saddir?
Þátturinn er skylduhlustun fyrir alla sem ætla að fylgjast með NBA-deildinni á komandi leiktíð og má finna á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




