HomeFréttirBogut með stórleik í sigri á Knicks

Bogut með stórleik í sigri á Knicks

NY Knicks töpuðu sínum öðrum leik í röð í nótt þegar þeir steinlágu fyrir Milwaukee Bucks. Það var ekki að Bucks væru að leika á meistara-standard heldur voru Knicks afleitir í þessum leik þar sem þeim virtist fyrirmunað að hitta á körfuna. Andrew Bogut, miðherji Bucks, átti stórleik með 24 stig og 20 fráköst, en þetta var um leið þriðji sigur Bucks í röð og eru þeir nú komnir í æsilegan slag um sæti í úrslitakeppni Austurdeildarinnar.

 
 
Á meðan unnu Dallas Mavericks góðan sigur á Indiana Pacers og Washington Wizards lögðu Chicago Bulls. Þá unnu LA Clippers sigur á Charlotte Bobcats og Atlanta Hawks sigruðu Utah Jazz á útivelli í fyrsta sinn í 17 ár.
 
Úrslit næturinnar/Tölfræði og video:
 
Washington 101 Chicago 95
New York 67 Milwaukee 83
Dallas 91 Indiana 82
Utah 100 Atlanta 105
LA Clippers 98 Charlotte 94
Fréttir
- Auglýsing -