KR hefur boðað til blaðamannafundar í hádeginu á morgun. Fundurinn verður í félagsheimili félagsins, en ekkert er tekið fram með hvaða leikmenn eða þjálfara KR muni kynna til leiks, þó er tekið fram í fréttatilkynningu að efni fundarins séu leikmannamál meistaraflokka félagsins.
Eftir 67 ára samfleytta sögu í efstu deild féll karlalið KR úr deild þeirra bestu tímabilið 2022-23. Félagið fór þó beint aftur upp úr fyrstu deildinni á síðasta tímabili, þar sem liðið tapaði aðeins tveimur leikjum á tímabilinu og vann fyrstu deildina nokkuð örugglega, en á sínu fyrsta tímabili aftur í deild þeirra bestu var liðið hársbreidd frá að tryggja sig inn í úrslitakeppnina.
Kvennalið KR mun að sama skapi einnig leika í deild þeirra bestu á næstu leiktíð, en þær tryggðu sig upp í Bónus deildina á dögunum eftir umspil þar sem þær unnu Hamar/Þór í úrslitaeinvígi.